Prófessor
Prófessor er kennari við háskóla með minni kennsluskyldu en lektor og dósent en meiri rannsóknarskyldu. Víða eru allir háskólakennarar nefndir prófessorar, einkum í enskumælandi löndum, en hliðstæður greinarmunur er þá gerður á nokkrum heitum:
- Assistant professor (jafngildir lektor)
- Associate professor (jafngildir dósent)
- Full professor eða senior professor (jafngildir prófessor)
- Professor emeritus upp á latínu (prófessor á eftirlaunum).