Vísitala um þróun lífsgæða

Útgáfa frá 25. febrúar 2011 kl. 02:05 eftir Manubot (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. febrúar 2011 kl. 02:05 eftir Manubot (spjall | framlög) (robot Bæti við: ckb:بنەمای پەرەسەندنی مرۆڤی)

Vísitala um þróun lífsgæða (e. Human Development Index (HDI)) er stuðull eða vísitala sem mælir lífslíkur, læsi, menntun og lífsgæði. Þessi mælikvarði gefur lauslega til kynna hvort land teljist til þróaðra landa eða þróunarlanda. Mælikvarðinn var hannaður af pakistanska hagfræðingnum Mahbub ul Haq árið 1990 og hefur verið notaður í árlegum skýrslum Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1993. Á hverju ári er reynt að meta öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna samkvæmt þessari aðferð.

Kort af heiminum sem sýnir dreifingu HDI eftir löndum (2007)
  0.950 og hærra
  0.900–0.949
  0.850–0.899
  0.800–0.849
  0.750–0.799
  0.700–0.749
  0.650–0.699
  0.600–0.649
  0.550–0.599
  0.500–0.549
  0.450–0.499
  0.400–0.449
  0.350–0.399
  minna en 0.350
  gögn ekki fáanleg

Vægi vísitölunnar byggist á þremur þáttum.

  • Meðal lífslíkur frá fæðingu
  • Hlutfall læsis á meðal fullorðinna og hlutfall sem stundar nám við skóla á öllum stigum.
  • Lífsgæði mæld með vergri landsframleiðslu með kaupmáttarjöfnuði í bandarískum dölum.

Einnig er til vísitala fátæktar.

Tengt efni

Tenglar

  • Vefsíða árlegrar skýrslu Þróunaráætlunnar Sameinuðu þjóðanna
  • Reiknivél á heimasíðu Þróunaráætlunnar Sameinuðu þjóðanna sem útskýrir hvernig HDI er reiknað út
  • „Hvaða land er það vanþróaðasta í heimi?“. Vísindavefurinn.
  • „Mbl.is: Lífskjör í fátækustu löndunum versna“. Sótt 11. febrúar 2007.
   Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.