Hugo Grotius
Hugo Grotius eða Huig de Groot eða Hugo de Groot (10. apríl 1583 – 28. ágúst 1645) var hollenskur lögfræðingur. Hann lagði ásamt Francisco de Vitoria grunn að alþjóðarétti sem byggist á náttúrurétti. Hann var einnig heimspekingur, leikskáld og ljóðskáld.
Hugo Grotius | |
---|---|
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 10. apríl 1583 |
Svæði | Vestræn heimspeki |
Tímabil | Heimspeki 17. aldar |
Skóli/hefð | Rökhyggja |
Helstu ritverk | De Indis; Mare Liberum; De jure belli ac pacis |
Helstu kenningar | De Indis; Mare Liberum; De jure belli ac pacis |
Helstu viðfangsefni | Réttarheimspeki, stjórnspeki, alþjóðastjórnmál |
Grotius fæddist í Delft á tímum áttatíu ára stríðsins. Faðir hans var menntamaður og veitti syni sínum góða menntun í anda húmanismans og hugmynda Aristótelesar. Hann var undrabarn og komst inn í háskólann í Leiden þegar hann var aðeins ellefu ára gamall. Grotius útskrifaðist úr háskólanum 1598 og var þá boðið að fara með í opinbera sendiför til Frakklands. Þegar hinn fimmtán ára gamli Grotius fékk áheyrn hjá konungi þá hreifst Hinrik 4. Frakkakonungur mjög af gáfum hans og bað um að undrinu frá Hollandi skyldi haldið eftir í Frakklandi. Grotius dvaldi í Frakklandi um hríð en sneri til Hollands og varð lögfræðingur í Haag árið 1599 og síðan opinber sagnaritari hollenska ríkisins árið 1601. Hann hóf fyrst að skrifa skipulega um alþjóðalög árið 1604 þegar hann blandaðist í mál sem tengdust töku holleskra kaupmanna á portúgölsku skipi í Singapúrflóa.
De Indis og Mare Liberum
breytaHollendingar stóðu í stríði við Spánverja og Portúgali þegar hlaðið kaupskip Santa Catarina var hertekið af kapteininum Jacob van Heemskerk árið 1603.
Heimild
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Hugo Grotius“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 23. júlí 2008.
Tenglar
breyta- „Hver var Hugo Grotius og hvert var hans framlag til fræðanna?“. Vísindavefurinn.
- Æviágrip úr Encyclopaedia Britannica, 1911[óvirkur tengill]
- Stanford Encyclopedia of Philosophy: „Hugo Grotius“
- Ítarleg skrá um rit Grotiusar sem finna má í Peace Palace Library, Haag Geymt 16 maí 2011 í Wayback Machine
- Heimildasíða um Grotius, með öðrum tenglum Geymt 15 maí 2008 í Wayback Machine
Textar á vefnum
breyta- Hugo Grotius, On the Laws of War and Peace Geymt 3 maí 2020 í Wayback Machine (stytt útgáfa)
- Hugo Grotius, The Rights of War and Peace Geymt 18 apríl 2007 í Wayback Machine (óstytt útgáfa)
- Hugo Grotius, De Jure Belli ac Pacis – Um lög stríðs og friðar (Fyrsta útgáfa á latínu, 1625) Frá gagnaveitu Bibliotheque Nationale í París
- Verk eftir Hugo Grotius hjá Project Gutenberg
- Logicarum disputationum quarta de postpraedicamentis Dispútasía (26. apríl 1597) eftir Hugo Grotius, þá 14 ára, í Háskólanum í Leiden
- Physicarum disputationum septima de infinito, loco et vacuo Önnur dispútasía (27. september 1597) eftir Hugo Grotius, þá 14 ára, í Háskólanum í Leiden
- Preparing Mare Liberum for the Press – eftir Martine Julia van Ittersum Geymt 17 desember 2008 í Wayback Machine