Stefán Karl Stefánsson
Stefán Karl Stefánsson (fæddur 10. júlí 1975 í Hafnarfirði, látinn 21. ágúst 2018 í Reykjavík) var íslenskur leikari. Hann var þekktastur fyrir hlutverk sín sem Glanni glæpur í Latabæ og sem Trölli (The Grinch) í söngleiknum Þegar Trölli stal jólunum víða í Bandaríkjunum og Kanada.
Stefán Karl Stefánsson | |
---|---|
Fæddur | Stefán Karl Stefánsson 10. júlí 1975 Hafnarfjörður, Íslandi |
Dáinn | 21. ágúst 2018 (43 ára) Reykjavík, Íslandi |
Ár virkur | 1994 – 2018 |
Stefán Karl útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands árið 1999 en áður hafði hann verið í Leikfélagi Hafnarfjarðar frá 13 ára aldri. Hann starfaði í Þjóðleikhúsinu um árabil. Ein þekktasta sýning hans var með Hilmi Snæ Guðnasyni í uppsetningu á írska leikritinu Með fulla vasa af grjóti . Stefán Karl og Hilmir Snær skiptust þar á að leika 14 hlutverk og urðu sýningar nærri 200.[1]
Hann stofnaði samtök gegn einelti; Regnbogabörn, en sjálfur hafði hann lent í einelti.[2]
Árið 2016 var Stefán Karl greindur með krabbamein í gallrásum.[3][4] Hann lést í ágúst árið 2018. Hann lét eftir sig eiginkonuna Steinunn Ólínu Þorsteinsdóttur, leikkonu, tvö börn og tvö stjúpbörn.
Árið 2018 var Stefán Karl sæmdur riddarkrossi Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til íslenskrar leiklistar og samfélags.
Kvikmynda- og sjónvarpsþáttaferill
breytaÁr | Kvikmynd/Þáttur | Hlutverk | Athugasemdir og verðlaun |
---|---|---|---|
1994 | Áramótaskaupið 1994 | ||
1995 | Einkalíf | Nemandi | |
1999 | Áramótaskaupið 1999 | ||
2001 | Eilífðin | Salamandran | |
Regína | Lögregluþjónn | ||
Áramótaskaupið 2001 | |||
2002 | Áramótaskaupið 2002 | ||
Litla lirfan ljóta | Ormurinn | ||
Stella í framboði | Ingimundur | ||
2004-2007, 2013-2014 | Latibær (e. LazyTown) | Glanni Glæpur (e. Robbie Rotten) | |
2007 | Anna and the Moods | Margir | |
2009 | Jóhannes | Diddi | |
2011 | Thor | ||
2011 | Kurteist fólk | Lárus Skjaldarson | |
2014 | Harry og Heimir | Símon |
Leiklistarferill
breytaÁr | Verk | Hlutverk | Athugasemdir og verðlaun |
---|---|---|---|
1997-1998 | Frumskógarbókin (Rudyard Kipling) | ||
1998-1999 | Krákuhöllin ( Einar Örn Gunnarsson) | ||
1998-1999 | Ivanov (Anton Chekhov) | ||
1999-2000 | Litla hryllingsbúðin | ||
1999-2000 | Draumur á Jónsmessunótt (Shakespeare) | ||
1999-2000 | 100 eyja sósa (Hallgrímur Helgason) | ||
2000-2001, 2012-2013, 2017 | Með fulla vasa af grjóti (Marie Jones) | Ýmis | |
2000-2001 | Singin' in the Rain | ||
2000-2002 | Kirsuberjagarðurinn (Anton Chekhov) | ||
2001-2002 | Cyrano de Bergerac (Edmond Rostand) | ||
2002-2003 | Allir á svið! (Noises off) (Michael Frayn) | ||
2002-2003 | (Þrjú tilbrigði við lífið (Trois versions de la vie) (Yasmina Reza) | ||
2008-2015 | Dr. Seuss' How the Grinch Stole Christmas! The Musical | Grinch |
Tenglar
breytaTilvísanir
breyta- ↑ Stefán Karl Stefánsson látinn Rúv, skoðað 23. ágúst 2018.
- ↑ Stefán Karl látinnVísir, skoðað 23. ágúst 2018.
- ↑ „Stefán Karl lagður inn á sjúkrahús um helgina“. 22. september 2016.
- ↑ „Stefán Karl alvarlega veikur“. 22. september 2016.