17. febrúar
dagsetning
Jan – Febrúar – Mar | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | ||
2024 Allir dagar |
17. febrúar er 48. dagur ársins samkvæmt gregoríska tímatalinu. 317 dagar (318 á hlaupári) eru eftir af árinu.
Atburðir
breyta- 1500 - Danski herinn tapaði orrustunni við Hemmingstedt og mistókst þar með að leggja undir sig bændalýðveldið í Þéttmerski.
- 1600 - Giordano Bruno var brenndur á báli fyrir villutrú.
- 1737 - Tólf manns fórust í ofviðri og mikill annar skaði varð á Norðurlandi.
- 1867 - Fyrsta skipið sigldi um Súesskurðinn.
- 1895 - Kvenfélagið Hvítabandið var stofnað.
- 1906 - Blaðið Ísafold birti fyrstu íslensku fréttamyndina. Var það teiknuð mynd af Friðriki áttunda að ávarpa mannfjölda.
- 1943 - Þormóðsslysið: Þormóður frá Bíldudal fórst á Faxaflóa á leið til Reykjavíkur og með skipinu 31 maður, þar af 22 frá Bíldudal.
- 1947 - Ingólfur Arnarsson, fyrsti nýsköpunartogarinn, kom til landsins. Skipið var smíðað í Bretlandi.
- 1965 - Geimskipið Ranger 8 var sent til Tunglsins.
- 1968 - Kolakraninn við Reykjavíkurhöfn var rifinn sama ár og fyrsti áfangi Sundahafnar var tekinn í notkun.
- 1972 - Sala Volkswagen-bjöllu varð meiri en sala Ford T hafði verið.
- 1975 - Fyrsta hljómplata AC/DC, High Voltage, kom út.
- 1977 - 77-hreyfingin varð til þegar stúdentar ráku ritara Almenna ítalska verkamannasambandsins (CGIL) af fundi í Háskólanum í Róm.
- 1979 - Alþýðulýðveldið Kína gerði innrás í Norður-Víetnam og hóf þannig stríð Kína og Víetnam.
- 1986 - Einingarlögin um Evrópubandalagið voru undirrituð í Lúxemborg.
- 1988 - 27 létust og 70 særðust þegar sprengja sprakk við First National Bank í Oshakati í Namibíu.
- 1988 - Bandaríska undirofurstanum William R. Higgins var rænt í Líbanon. Hann var síðar myrtur.
- 1989 - Magrebbandalagið var stofnað.
- 1992 - Mani pulite hófst á Ítalíu með handtöku Mario Chiesa.
- 1993 - 1215 af 1500 farþegum fórust þegar ferja sökk við Haítí.
- 1994 - Apple QuickTake, fyrstu stafrænu myndavélarnar fyrir almennan markað sem hægt var að tengja við tölvu, komu á markað.
- 1996 - Garry Kasparov sigraði tölvuna Deep Blue í skák.
- 1996 - Biak-jarðskjálftinn reið yfir Papúahérað í Indónesíu. 166 fórust í flóðbylgju sem fylgdi í kjölfarið.
- 2000 - Microsoft gaf út Windows 2000.
- 2002 - 150 létust þegar skæruliðar í Nepal gerðu árás á stjórnarhermenn og embættismenn.
- 2003 - Egypska trúarleiðtoganum Abu Omar var rænt af útsendurum CIA í Mílanó.
- 2006 - Allt að 1800 manns létust í aurskriðu á eyjunni Leyte á Filippseyjum.
- 2008 - Kosóvó lýsti yfir sjálfstæði frá Serbíu.
- 2008 - Yfir 100 létust í hryðjuverkaárásum í Kandahar í Afganistan.
- 2009 - 368 sjónvarpsstöðvar í Bandaríkjunum hættu hliðrænum útsendingum.
- 2012 - Forseti Þýskalands, Christian Wulff, sagði af sér vegna ásakana um spillingu.
- 2016 - 28 létust í sprengjutilræði í Ankara í Tyrklandi.
Fædd
breyta- 1812 - Pétur Havsteen, íslenskur stjórnmálamaður (d. 1875).
- 1821 - Lola Montez, írsk-spænsk dansmær og hjákona Lúðvíks konungs af Bæjaralandi (d. 1861).
- 1877 - Johanna Maria Skylv-Hansen, færeyskur rithöfundur (d. 1974).
- 1896 - Pétur Sigurðsson, háskólaritari og knattspyrnumaður (d. 1971).
- 1901 - Lee Strasberg, bandarískur leikari (d. 1982).
- 1917 - Þorleifur Þorleifsson íslenskur ljósmyndari og teiknari (d. 1974).
- 1920 - Ivo Caprino, norskur teiknimyndaleikstjóri (d. 2001).
- 1925 - Hal Holbrook, bandarískur leikari. (d. 2021)
- 1941 - Faramarz Gharibian, íranskur leikari.
- 1946 - Magnús Ólafsson, íslenskur leikari.
- 1948 - Ragnar Thorseth, norskur ævintýramaður.
- 1951 - Reza Kianian, íranskur leikari.
- 1955 - Mo Yan, kínverskur rithöfundur.
- 1963 - Michael Jordan, bandarískur körfuknattleiksmaður.
- 1963 - Larry the Cable Guy, bandarískur leikari.
- 1965 - Michael Bay, bandarískur kvikmyndaleikstjóri.
- 1972 - Billie Joe Armstrong, bandarískur söngvari og tónlistarmaður (Green Day).
- 1972 - Taylor Hawkins, bandarískur tónlistarmaður (Foo Fighters). (d. 2022)
- 1973 - Shirley Clamp, sænsk söngkona.
- 1981 - Paris Hilton, bandarísk leikkona og milljónaerfingi.
- 1982 - Adriano Leite Ribeiro, brasilískur knattspyrnumaður.
- 1984 - Ásgeir Örn Hallgrímsson, íslenskur handknattleiksmaður.
- 1988 - Natascha Kampusch, fórnarlamb mannræningja.
- 1991 - Ed Sheeran, enskur söngvari.
Dáin
breyta- 364 - Jovianus keisari Rómar.
- 1339 - Ottó hertogi af Austurríki (f. 1301).
- 1600 - Giordano Bruno, ítalskur heimspekingur (f. 1548).
- 1609 - Ferdínand 1. de' Medici, stórhertogi Toskana (f. 1549).
- 1673 - Moliére, franskt leikskáld (f. 1622).
- 1702 - Peder Syv, danskur málvísindamaður (f. 1631).
- 1856 - Heinrich Heine, þýskt ljóðskáld (f. 1797).
- 1917 - Axel Olrik, danskur textafræðingur (f. 1864).
- 1970 - Shmuel Yosef Agnon, ísraelskur rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi (f. 1888).
- 2004 - José López Portillo, forseti Mexíkó (f. 1920).
- 2004 - Cameron Todd Willingham, bandarískur meintur morðingi (f. 1968).