Jón Gnarr
Heimildir skortir fyrir staðhæfingum í þessari grein. Ef þú vilt bæta við heimild vinsamlegast bættu þeim við undir nýrri fyrirsögn („Heimildir“) eða skildu eftir athugasemd á spjallsíðunni. |
Jón Gnarr (áður Jón Gunnar Kristinsson; f. 2. janúar 1967) er leikari, útvarpsmaður og listamaður. Jón var borgarstjóri Reykjavíkur fyrir hönd Besta flokksins á árunum 2010–2014.
Jón Gnarr | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Borgarstjóri Reykjavíkur | |||||||
Í embætti 15. júní 2010 – 16. júní 2014 | |||||||
Forveri | Hanna Birna Kristjánsdóttir | ||||||
Eftirmaður | Dagur B. Eggertsson | ||||||
Borgarfulltrúi í Reykjavík | |||||||
| |||||||
Persónulegar upplýsingar | |||||||
Fæddur | 2. janúar 1967 Reykjavík, Íslandi | ||||||
Stjórnmálaflokkur | Besti flokkurinn (2009–2014) Björt framtíð (2012–2015) Samfylkingin (2017–2024) Viðreisn (2024–) | ||||||
Maki | Jóga Jóhannsdóttir | ||||||
Börn | 5 | ||||||
Háskóli | Listaháskóli Íslands | ||||||
Starf | Leikari, stjórnmálamaður |
Æviágrip
breytaForeldrar Jóns voru komin af léttasta skeiði þegar þau eignuðust hann og er hann lang-yngstur barna þeirra. Faðir Jóns var lögreglumaður í yfir 40 ár og kommúnisti. Var samband þeirra erfitt.
Jón var greindur með þroskaskerðingu sem barn og var um tíma á barna- og unglingageðdeild. Hann hefur verið greindur með athyglisbrest með ofvirkni og lesblindu. Á unglingsárum gekk hann undir nafninu Jónsi pönk og var undir áhrifum frá anarkisma og pönk-hljómsveitinni Crass.
Jón hefur unnið sem verkamaður í Volvoverksmiðjunum í Gautaborg, sem leigubílstjóri, á Kópavogshæli og Kleppi. Hann er með meirapróf.
Jón Gnarr á að baki farsælan feril sem leikari, listamaður og grínisti. Hann sá um útvarpsþáttinn Tvíhöfða á X-inu, Radíó, Radíó X og Rás 2 ásamt Sigurjóni Kjartansyni. Þar áður stjórnaði hann öðrum útvarpsþætti, Heimsenda á Rás 2 árið 1994. Árin 1995–1996 var hann ásamt Sigurjóni Kjartansyni með innskot í þættinum Dagsljós á RÚV sem hét Hegðun, atferli og framkoma.[1]
Árið 1998 var hann með uppistandssýninguna Ég var einu sinni nörd og árið 2018 hélt hann upp á 20 ára afmæli þess með uppistandi í Eldborg í Hörpu.
Jón hefur leikið í ýmsum sjónvarpsþáttum svo sem Limbó, Fóstbræðrum, Næturvaktinni, Dagvaktinni og Fangavaktinni auk ýmissa kvikmynda, til dæmis Maður eins og ég og Íslenski draumurinn.
Besti flokkurinn
breytaÁrið 2009 stofnaði Jón Besta flokkinnsem bauð fram í borgarstjórnarkosningunum 29. maí 2010 í Reykjavík og fékk flokkurinn 6 af 15 borgarstjórnarfulltrúum kjörna. Fljótlega ákváð flokkurinn að ganga til viðræðna við Samfylkinguna um meirihluta, sem og varð. Jón Gnarr var kjörinn borgarstjóri í Reykjavík á fundi nýrrar borgarstjórnar 15. júní 2010 og sat út tímabilið. Hann gaf ekki kost á sér til endurkjörs í borgarstjórnarkosningum 2014.
Forsetaframboð
breytaÍ janúar 2016 var Jón mikið í umræðunni um mögulega forsetaframbjóðendur í forsetakosningum 2016 en 16. janúar tilkynnti hann að hann ætlaði ekki í framboð.[2]
Fyrir forsetakosningarnar 2024 var Jón aftur mikið í umræðunni og 5. janúar sagði hann í viðtali að hann útilokaði ekkert.[3] 12. febrúar greindi Jón frá því að hann væri alvarlega að íhuga framboð.[4] 22. mars sagði Jón í þættinum Vikan með Gísla Marteini að það væri meiri líkur en minni að hann færi í framboð.[5] 2. apríl 2024 tilkynnti Jón framboð til forseta Íslands í myndbandstilkynningu á samfélagsmiðlum.[6] Jón hlaut 10,1% fylgi og endaði í 4. sæti frambjóðenda.
Ritferill
breytaJón hefur gefið út nokkrar sjálfsævisögulegar bækur, þar á meðal Indíánann, Sjóræningjann og Útlagann þar sem hann talar meðal annars um erfiða reynslu úr héraðskólanum á Núpi í Dýrafirði.[7] Árið 2014 gaf hann út bók á ensku; Gnarr! How I Became the Mayor of a Large City in Iceland and Changed the World. Árið 2021 kom út bókin Óorð: Bókin um vond íslensk orð.
Menntun
breytaJón er með MFA gráðu frá Listaháskóla Íslands. Sem útskriftarverkefni flutti Jón Konungsbókarútgáfu Völuspár Geymt 25 janúar 2024 í Wayback Machine við frumsamið lag.
Einkalíf
breytaJón er giftur Jógu Gnarr Jóhannsdóttur. Þau eiga 5 börn.
Eitt og annað
breytaLeikaraferill
breytaKvikmyndir | |||
---|---|---|---|
Ár | Kvikmynd | Hlutverk | Athugasemdir |
1997 | Blossi/810551 | Brjálaður útvarpshlustandi | |
2000 | Íslenski draumurinn | Valli | |
2002 | Í skóm drekans | Hann sjálfur | |
Maður eins og ég | Júlli | ||
2003 | Karamellumyndin | Stuttmynd | |
2004 | Með mann á bakinu | J-n | Stuttmynd Tilnefnd til Edduverðlauna fyrir handrit ársins Einnig leikstjóri og handritshöfundur |
Pönkið og Fræbbblarnir | Hann sjálfur | ||
2007 | Astrópía | Ögmundur | |
2008 | Stóra planið | Ráðgjafi | Senum var eytt |
2009 | Bjarnfreðarson | Georg Bjarnfreðarson | Einnig framleiðandi og handritshöfundur ásamt fleirum |
2010 | Gnarr | Hann sjálfur | Heimildarmynd um stjórnmálaferil hans. Frumsýnd 12. nóvember 2010. |
2018 | Kona fer í stríð | Forseti lýðveldisins Ísland | |
2019 | Þorsti | Leigubílstjóri | |
2020 | Gullregn | Hjalti Pétur | |
2021 | Leynilögga | Forsætisráðherra | |
Sjónvarp | |||
Ár | Titill | Hlutverk | Athugasemdir |
1993 | Limbó | Ýmsir | Einnig handritshöfundur ásamt fleirum
1 þáttur |
1994–1996 | Tvíhöfði | Ýmsir | Einnig handritshöfundur ásamt fleirum
12 þættir |
1999 | Enn ein stöðin | Hann sjálfur | Einn þáttur |
1997–2001 | Fóstbræður | Ýmsir | Hlaut Edduverðlaunin fyrir leikara ársins í aðalhlutverki árið 2001 Einnig handritshöfundur ásamt fleirum 39 þættir |
2004 | Tvíhöfði | Ýmsir | Teiknaðir þættir Einnig handritshöfundur ásamt fleirum |
Áramótaskaupið 2004 | Safnvörður | ||
Svínasúpan | Ýmsir | ||
2006 | Áramótaskaupið 2006 | Ýmsir | |
2007 | Næturvaktin | Georg Bjarnfreðarson | Einnig handritshöfundur ásamt fleirum 12 þættir |
Áramótaskaupið 2007 | Ýmsir | Einnig handritshöfundur ásamt fleirum | |
2008 | Dagvaktin | Georg Bjarnfreðarson | Einnig handritshöfundur ásamt fleirum 11 þættir |
2009 | Fangavaktin | Georg Bjarnfreðarson | Einnig handritshöfundur ásamt fleirum 7 þættir |
2016 | Borgarstjórinn | Borgarstjórinn | Einnig handritshöfundur ásamt fleirum
10 þættir |
Áramótaskaup 2016 | Ýmsir | Einnig handritshöfundur ásamt fleirum
Einnig leikstjóri | |
2018 | Áramótaskaup 2018 | Ýmsir | Einnig handritshöfundur ásamt fleirum |
2020 | Eurogarðurinn | Baddi | 8 þættir |
Bækur
breyta- Börn ævintýranna (1988)
- Miðnætursólborgin (1989)
- Plebbabókin (2002)
- Þankagangur (2005)
- Indjáninn (2006)
- Sjóræninginn (2012)
- How I became a mayor of a large city in Iceland and changed the world (2014)
- Útlaginn (2015)
- Þúsund kossar (2017)
- Óorð (2021)
Viðurkenningar
breyta- 2010 – Visir.is, Maður ársins
- 2013 – Heiðursmeðlimur Samtakanna 78
- 2013 – Húmanistaviðurkenning Siðmenntar
- 2014 – LennonOno friðarverðlaun
Tilvísanir
breyta- ↑ http://www.mbl.is/greinasafn/grein/237546/
- ↑ „Jón Gnarr ekki í forsetaframboð“. www.mbl.is. Sótt 2. apríl 2024.
- ↑ Gunnarsson, Björgvin (5. janúar 2024). „Jón Gnarr útilokar ekki forsetaframboð: „Hef bara ekki haft höfuðpláss í miklar pælingar" -“. Mannlíf.is. Sótt 2. apríl 2024.
- ↑ Pétursson, Vésteinn Örn (2. desember 2024). „Íhugar forsetaframboð af alvöru - Vísir“. visir.is. Sótt 2. apríl 2024.
- ↑ „Jón Gnarr íhugar að bjóða sig fram“. www.mbl.is. Sótt 2. apríl 2024.
- ↑ Stefánsson, Jón Þór (4. febrúar 2024). „Jón Gnarr ætlar á Bessastaði - Vísir“. visir.is. Sótt 2. apríl 2024.
- ↑ http://www.ruv.is/frett/svona-missir-folk-vitid
Tenglar
breyta- Ferill Jóns Gnarr á heimasíðu Reykjavíkurborgar Geymt 3 júlí 2011 í Wayback Machine
- Jón Gnarr á Internet Movie Database
- vefur um Jón Gnarr,gerður af fjölmiðlatækninemum í Borgarholtsskóla[óvirkur tengill]
- Viðtal við næsta borgarstjóra?; þýðing úr Grapevine, viðtal við Jón af bloggsíðu Illuga Jökulssonar 2010 Geymt 25 maí 2010 í Wayback Machine
- Jón Gnarr óvinsælli en í fyrra, frétt á Rúv.is 7. september 2011
- Jón Gnarr stofnar stjórnmálaflokk; grein í Fréttablaðinu 2009
- Karlar vilja klám, konur orðaleiki; grein í Fréttablaðinu 2006
- Margir halda að ég sé klikkaður; viðtal við Jón í DV 2002
- Ég vil að fólk þegi og hlusti á mig; viðtal við Jón í DV 1999
- Við erum mjög hæfileikaríkir menn; grein í Helgarpóstinum 1997
- Konungur ævintýranna; grein í DV 1988
- Síðan hef ég ekki grátið yfir ljóðum; viðtal við Jón í Lesbók Morgunblaðsins 1988
Fyrirrennari: Hanna Birna Kristjánsdóttir |
|
Eftirmaður: Dagur B. Eggertsson | |||
Verðlaun | |||||
---|---|---|---|---|---|
Fyrirrennari: Ingvar E. Sigurðsson |
Edduverðlaunin fyrir leikara ársins í aðalhlutverki 2001 |
Eftirfari: Gunnar Eyjólfsson |