Newcastle United er knattspyrnulið í ensku úrvalsdeildinni . Meðal þekktra fyrrum leikmanna félagsins er markahrókurinn Alan Shearer , aðrir þekktir leikmenn sem hafa spilað fyrir félagið eru Les Ferdinand , Kevin Keegan , David Ginola og Andy Cole . Leikvangur liðsins heitir St James' Park og er einn af stærstu völlum Englands.
St James' Park í Newcastle árið 2007.
Leikmenn Newcastle United árið 1960 .
Árið 2021 tóku Sádí-arabískir fjárfestar við liðinu sem tengdir eru stjórnvöldum Sádí-Arabíu.
Fólk sem kemur frá Newcastle upon Tyne og nágrenni er kallað Geordie. Dyggir stuðningsmenn Newcastle eru kallaðir “The Toon Army”. ”Work Hard, Play Hard” eru einkunnarorð og slagorðið ”We are Mental, and we are Mad” er sungið.
Stærsti sigur: 13-0 gegn Newport County, fyrsta deild, 5. október 1946
Stærsta tap: 0-9 gegn Burton Wanderers, fyrsta deild, 15. apríl 1895
Flest deildarmörk á einni leiktíð: 98, úrvalsdeild, 1951/52
Flest mörk : Alan Shearer , 206, 1996-2006
Flest mörk á einni leiktíð: Andy Cole , 41, 1993/94
Flestir Leikir: Jimmy Lawrence , 496 (þar af 432 í deild), 1904-22
Flestir áhorfendur: 68.386 á móti Chelsea, úrvalsdeild, 3. september 1930
Ath: Fánar eru tákn fyrir það þjóðerni sem skráð eru hjá FIFA . Leikmenn gætu haft fleiri en eitt ríkisfang.
Stytta af Alan Shearer , sem er fyrir utan St James' Park
Úrvalsdeild
1. sæti (Meistarar) – 1905, 1907, 1909, 1927
2. sæti – 1995/96, 1996/1997
Fyrsta deild
1. sæti (Meistarar) – 1964–65, 1992–93, 2009–10, 2016–17
2. sæti – 1898, 1948
FA Cup
Sigurvegarar – 1910, 1924, 1932, 1951, 1952, 1955
Úrslitaleikir – 1905, 1906, 1908, 1911, 1973/74, 1997/98, 1998/99
Deildarbikar
Úrslitaleikir – 1975/76, 2022/23
Knattspyrnustjórar Newcastle
breyta
Kevin Keegan náði góðum árangri með Newcastle, og stýrði m.a liði Newcastle sem var mjög nálægt því að vinna deildina 1995-96
Sir Bobby Robson var stjóri Newcastle í fimm ár, eða til ársins 2004, hann var mjög vinsæll meðal stuðningsmanna Newcastle