Fara í innihald

Eiríkur Hauksson

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eiríkur Hauksson
Eiríkur í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2007
Upplýsingar
Fæddur4. júlí 1959 (1959-07-04) (65 ára)
Önnur nöfnEric Hawk
StörfSöngvari

Eiríkur Hauksson (f. 4. júlí 1959), kallaður Eric Hawk alþjóðlega, er íslenskur tónlistarmaður búsettur í Noregi frá 1988. Hann hefur m.a. verið meðlimur í rokk og þungarokkshljómsveitunum Start, Drýsill og Artch.

Árið 1985 urðu tvö lög sem Eiríkur söng, „Gaggó Vest“ og „Gull“, eftir Gunnar Þórðarson mjög vinsæl og er hann helst þekktur á Íslandi fyrir þau lög ásamt þátttöku sinni í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 1986 þar sem hann söng lagið „Gleðibankinn“. Árið 1985 tók hann einnig þátt í laginu „Hjálpum þeim“ til styrktar hungursneyðar í Afríku (sambærilegt Live Aid í Bretlandi).

Eiríkur tók aftur þátt í Eurovision 1991 fyrir hönd Noregs með lagið „Mrs. Thompson“ en þar söng hann með hljómsveitinni Just4Fun.

Eiríkur söng sem gestasöngvari á plötu sænsku melódísku dauðarokksveitarinnar Gardenian árið 1999. Árið 2005 túraði Eiríkur með Ken Hensley úr Uriah Heep um Evrópu. Hann var söngvari norska progrokkbandsins Magic Pie árið 2007.

Þann 17. febrúar 2007 var hann valinn til að flytja lagið „Valentine Lost“ („Ég les í lófa þínum“ á íslensku) fyrir hönd Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2007 sem var haldin 12. maí í Helsinki í Finnlandi, en komst ekki upp úr undankeppninni.

  Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.