Fara í innihald

Hrolleifsdalur

Hnit: 66°00′28″N 19°20′04″V / 66.00778°N 19.33444°V / 66.00778; -19.33444
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

66°00′28″N 19°20′04″V / 66.00778°N 19.33444°V / 66.00778; -19.33444

Séð fram í Hrolleifsdal.

Hrolleifsdalur er dalur sem liggur til suðausturs inn í Tröllaskagafjallgarðinn upp frá Sléttuhlíð við austanverðan Skagafjörð.[1] Dalurinn er sagður kenndur við Hrolleif landnámsmann. Fáeinir bæir voru í Hrolleifsdal en þeir eru nú allir komnir í eyði.[2]

Hrolleifsdalsá rennur um dalinn og síðan til sjávar í sunnanverðri Sléttuhlíð. Nokkrar skógarleifar eru í dalnum, þær einu sem finna má í Skagafirði að frátöldum skógarleifum í Vesturdal, og kallast þar Geirmundarhólsskógur.[3] Hann hefur verið friðaður um langt árabil en hefur átt erfitt uppdráttar vegna mikilla snjóþyngsla í dalnum.

Nokkur jarðhiti er í Hrolleifsdal og er vatn úr borholu í landi eyðibýlisins Bræðraár nú leitt til Hofsóss.[4]

  1. Háskólabókasafn, Landsbókasafn Íslands-. „Tímarit.is“. timarit.is. Sótt 7. október 2024.
  2. „Hrolleifsdalsá - NAT ferðavísir“. 14. maí 2021. Sótt 7. október 2024.
  3. Háskólabókasafn, Landsbókasafn Íslands-. „Tímarit.is“. timarit.is. Sótt 7. október 2024.
  4. Kristján Sæmundsson (ORKUSTOFNUN 2000). „Helstu niðurstöður í jarðhitaleit í Skagafirði í áfanga 2000“ (PDF).