Fara í innihald

Nimis

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Nimis - yfirlitsmynd yfir verkið
Nærmynd

Nimis (eða Nímis) (latína: of mikið, úr hófi keyrandi) er listaverk - þó sumir deili þar um - sem stendur við Kullaberg við suðvesturströnd Svíþjóðar. Kullaberg er sérkennileg klettaborg í Hauganesbæ (sænska: Höganäs kommun) í Skáni. Nimis er aðallega gert úr rekaviði.

Listaverkið, sem listamaðurinn kallar skúlptúr, er eftir Lars Vilks og hófst hann handa við verkið um 1980 og er enn í byggingu (árið 2008). Lars Vilks hefur síðan stofnað til fríríkis, sem hann nefnir Ladonien, og spannar það svæðið í kringum listaverkið.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.