Christian Thams
Útlit
Christian Thams (9. september 1867 – 22. maí 1948) var norskur arkitekt og frumkvöðull á sviði byggingariðnaðar og námavinnslu í Noregi og Austur-Afríku, aðallega Mósambík þar sem hann rak Société du Madal sem fékkst við plantekruræktun og námavinnslu.
Hann lærði arkitektúr í Sviss og stofnaði arkitektastofur í Nice og París. Hann hannaði norska húsið á Heimssýningunni í París árið 1889 og á Kólumbusarsýningunni í Chicago 1893 sem bæði voru í sveitserstíl þótt hið síðara hafi átt að minna á stafkirkju.