Hubert Humphrey
Hubert Humphrey | |
---|---|
Varaforseti Bandaríkjanna | |
Í embætti 20. janúar 1965 – 20. janúar 1969 | |
Forseti | Lyndon B. Johnson |
Forveri | Lyndon B. Johnson |
Eftirmaður | Spiro Agnew |
Öldungadeildarþingmaður fyrir Minnesota | |
Í embætti 3. janúar 1971 – 13. janúar 1978 | |
Forveri | Eugene McCarthy |
Eftirmaður | Muriel Humphrey |
Í embætti 3. janúar 1949 – 29. desember 1964 | |
Forveri | Joseph H. Ball |
Eftirmaður | Walter Mondale |
Borgarstjóri Minneapolis | |
Í embætti 2. júlí 1945 – 30. nóvember 1948 | |
Forveri | Marvin L. Kline |
Eftirmaður | Eric G. Hoyer |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 27. maí 1911 Wallace, Suður-Dakóta, Bandaríkjunum |
Látinn | 13. janúar 1978 (66 ára) Waverly, Minnesota, Bandaríkjunum |
Þjóðerni | Bandarískur |
Stjórnmálaflokkur | Demókrataflokkurinn |
Maki | Muriel Buck (g. 1936) |
Börn | 4 |
Háskóli | Minnesota-háskóli Háskólinn í Louisiana |
Undirskrift |
Hubert Horatio Humphrey, Jr. (f. 27. maí 1911, d. 13. janúar 1978) var öldungardeildarþingmaður frá Minnesota og gegndi embætti varaforseta Bandaríkjanna í valdatíð Lyndon B. Johnson. Hann var menntaður stjórnmálafræðingur og lyfjatæknir. Humphrey fæddist í Wallace í Codington-sýslu í Suður-Dakota.[1]
Menntun
[breyta | breyta frumkóða]Humphrey hóf nám í Minnesota-háskóla árið 1929 en varð að hætta vegna fjárhagsörðugleika á tímum kreppunnar miklu. Þess í stað kláraði hann nám í lyfjatækni og starfaði í apóteki í eigu fjölskyldunnar. Síðar útskrifaðist hann með Bachelor gráðu í stjórnmálafræði frá Háskólanum í Minnesota og mastergráðu í stjórnmálafræði frá Háskólanum í Louisiana-fylki. Það var ætlun hans að ljúka doktorsnámi í stjórnmálafræði en hann hætti því vegna þess hversu virkur hann var í stjórnmálum.[2]
Stjórnmálaferill
[breyta | breyta frumkóða]Árið 1945 varð Humphrey borgarstjóri Minneapolis. Hann fangaði athygli þjóðarinnar með þrumuræðu um borgaraleg réttindi minnihlutahópa á Þjóðarfundi demókrata árið 1948, sama ár var hann kosinn þingmaður öldungardeildar. Hann var kjörinn varaforseti Bandaríkjanna árið 1964 og gegndi því embætti í fjögur ár í valdatíð Lyndon B. Johnson. Eftir að hafa beðið ósigur í forsetakosningum gegn Richard Nixon árið 1968 sneri Humphrey aftur til öldungardeildar árið 1971 og starfaði þar þangað til hann lést úr krabbameini í byrjun árs 1978. Það sama ár tilkynnti Jimmy Carter um stofnun Hubert H. Humphrey Fellowship Program honum til heiðurs.[3]
Eitt af hans merkustu afrekum var að koma á sáttmála við Sovétríkin um takmörkun og bann á kjarnorkutilraunum (e. Limited Nuclear Test Ban Treaty) árið 1963. Þá átti hann þátt í að koma lögum um borgaraleg réttindi (e. Civil Rights Act) í gegnum þingið árið 1964, þrátt fyrir gífurlegt málþóf. Hann átti einnig þátt í að koma fjölda annarra laga í gegnum þing og var talinn afkastamikill á því sviði.[4]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Hubert H. Humphrey“. Sótt 22. nóvember 2014.
- ↑ „Hubert H. Humphrey“. Sótt 22. nóvember 2014.
- ↑ „Hubert H. Humphrey“. Sótt 22. nóvember 2014.
- ↑ „VP Hubert Humphrey“. Sótt 22. nóvember 2014.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- The Hubert H. Humphrey Fellowship Program. (e.d.) „Hubert H. Humphrey.“ Sótt 22/11/2014 af: https://www.humphreyfellowship.org/hubert-h-humphrey Geymt 17 mars 2015 í Wayback Machine
- BU Humphrey Fellowship Program. (e.d.) „Hubert H. Humphrey.“ Sótt 22/11/2014 af: http://www.bu.edu/hhh/about/hubert-h-humphrey/
- United States Senate. (e.d.). „Hubert H. Humphrey, 38th Vice President (1965-1969).“ Sótt 22/11/2014 af: https://www.senate.gov/artandhistory/history/common/generic/VP_Hubert_Humphrey.htm
Fyrirrennari: Lyndon B. Johnson |
|
Eftirmaður: Spiro Agnew |